Stuðningsfjölskyldur óskast í Fjallabyggð
Félagsþjónusta Fjallabyggðar óskar eftir fjölskyldum eða einstaklingum til að taka að sér börn í tvo eða fleiri sólarhringa í mánuði.
Starf stuðningsfjölskyldna er fjölbreytt og felst í því meðal annars að bjóða barni eða börnum að taka þátt í daglegu lífi fjölskyldunnar og tómstundum.
Fyrir barnið er stuðningsfjölskylda hugsuð sem skemmtileg upplifun og tilbreyting en um leið hvíld og stuðningur fyrir foreldra eða forráðamenn barnanna.
Frekari upplýsingar gefur Helga Helgadóttir, ráðgjafi í félagsþjónustu í síma 464-9100 eða á netfangið helgah@fjallabyggd.is.