dalvíkurbyggð

Styrktarsamningur milli Dalvíkurbyggðar og Skógræktarfélags Eyjafjarðar

Í lok júní undirrituðu Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, og Sigríður Hrefna Pálsdóttir, formaður Skógræktarfélags Eyjafjarðar, styrktarsamning milli Dalvíkurbyggðar og Skógræktarfélags Eyjafjarðar.

Með samningnum er vonast til að bæta aðgengi og umhirðu í Hánefsstaðareit og styðja þannig við lýðheilsu og hreyfingu.

Undirritunin fór fram í Hánefsstaðareit við minnisvarðann um upphafsmann reitsins, Eirík Hjartarson.