Sundlaugarkorthafar í Dalvíkurbyggð fá aðgang í Fjallabyggð
Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt að veita korthöfum í sundlaug Dalvíkurbyggðar frítt í sund í sundlaugum Fjallabyggðar á meðan framkvæmdum stendur í sumar. Gerður verður ótímabundinn samningur um áframhaldandi samstarf sveitarfélaganna vegna málsins.
Í mörg ár hafa Sundlaugar Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar haft með sér það fyrirmyndar samstarf að þegar loka þarf vegna framkvæmda á öðrum hvorum staðnum fá korthafar með gild kort á þeim stað frítt á hinum staðnum.
Til stendur að loka í sundlauginni á Dalvík í sumar vegna framkvæmda og geta því korthafar leitað til Fjallabyggðar.