Sundlaugin á Dalvík lokar vegna viðhalds frá 1. apríl
Sundlaugin á Dalvík verður lokuð vegna viðhalds frá og með 1. apríl næstkomandi og út júní.
Áfram verður opið í sal, rækt, gufu og sturtuklefa. Áætluð verklok eru 30. júní 2025.
Viðhaldsverkið er þríþætt:
- Breyting á laugarkari þar sem fjarlægja á þríhyrning á vesturhlið laugar.
- Flísalögn á öllu sundlaugarkari, pottum og vaðlaugum.
- Raflagnavinna og endurnýjun á myndavélakerfi.