Sveitastjóri Dalvíkurbyggðar fór yfir árið 2025
Sveitastjóri Dalvíkurbyggðar birti pistil á vef sveitarfélagisns á gamlársdag, sem er hér endurbirtur að hluta.
Dalvíkurbyggð hefur á árinu 2025 unnið markvisst að mikilvægum framkvæmdum, styrkingu innviða og viðhaft ábyrga fjármálastjórn, með það að markmiði að tryggja traustan rekstur og bætta þjónustu til framtíðar. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að skapa aðstæður sem styðja við jákvæða mannfjöldaþróun, fjölbreytt búsetuúrræði og öflugt samfélag fyrir fólk á öllum aldri.
Mikil áhersla sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar á skipulagsmál hefur nú þegar skilað sér og er mun meira í farvatninu á næsta ári. Nýtt aðalskipulag fyrir Dalvíkurbyggðar mun taka gildi sem og deiliskipulög fyrir nýja íbúabyggð á Árskógssandi og á Dalvík.
Þá voru allar íbúðir sveitarfélagsins seldar Leigufélaginu Bríet og á í framhaldinu að vinna að því að byggja íbúðir í samvinnu við félagið. Þá er sveitarfélagið búið að samþykkja stofnframlag vegna byggingu íbúða í samvinnu við Brák Íbúðafélag hses. Þær var fyrirhugað að byggja við Dalbæ, en eins og allir vita hefur verið fallið frá þeirri staðsetningu, en alls ekki frá áformum um að byggja leiguíbúðir. Þessi tvö verkefni munu koma á virkum leigumarkaði í sveitarfélaginu.
Sundlaugin á Dalvík var mikið endurnýjuð í sumar og flísalögð í hólf og gólf, með þessari framkvæmd á viðhald við mannvirkið að minnka og mun kalla á að lokað verði í tæpa viku í byrjun hvers sumars og tíminn notaður til viðhalds. Ef þetta er gert einu sinni á ári þá eigum við að vera í góðum málum með þetta mikilvæga mannvirki. Það er nefnilega svo að Dalvíkurbyggð stendur sig vel hvað varðar fjármögnun íþrótta- og æskulýðsmála, því rúm 15% skatttekna sveitarfélagsins fara í þann málaflokk.
Þá eru stór verkefni framundan eins og bygging slökkvistöðvar, vatnstanks við Upsa og byggðasafns. Teikningar af slökkvistöð verða tilbúnar fyrir vorið, það kom smá slaki í vinnuna þar sem ekki er einhugur um staðsetningu, en við stefnum á að taka þá umræðu og ljúka á nýju ári. Varðandi byggðasafnið þá hefur verið tekið ákvörðun um að byggja við Menningarhúsið Berg, með því næst fram hagræðing meðal annars í starfsmannahaldi þar sem allt starfsfólk safnanna verður á sama stað og af því leiðir að hægt verður að auka opnunartímann og gera meira úr þeim menningarverðmætum sem við eigum. Þá fer vatnstankurinn í útboð í byrjun janúar næst komandi. Allt eru þetta mikilvæg verkefni sem munu taka á fjárhag sveitarfélagsins.
Leikskólinn Krílakot er orðinn fullsetinn og mikilvægt að huga að því að leysa úr þeirri stöðu. Þá er grunnskóladeild Árskógsskóla að fara yfir í Dalvíkurskóla frá hausti 2026 og þar með verður rekinn einn grunnskóli í sveitarfélaginu.
