Tap á Ólafsfjarðarvelli
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar og Dalvík/Reynir mættust á Ólafsfjarðarvelli í gær í lokaumferð 3. deildar. Dalvík/Reynir var búinn að tryggja sér sæti í 2. deild fyrir þennan leik. KF þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að eiga möguleika að fylgja Dalvík/Reyni upp í 2. deild að ári. KF stillti upp sínu sterkasta liði í dag og ætluðu sér sigur.
KF byrjaði leikinn vel og var betra liðið á vellinum. Hvorugu liðinu tókst að skora í fyrri hálfleik, og var því staðan 0-0 þegar dómarinn flautaði til leikhlés. Síðari hálfleikur byrjaði svo með látum, þegar KF fékk dæmda vítaspyrnu á 51. mínútu. Aksentije Milisic (nr. 7) tók spyrnuna og skoraði af öryggi, og staðan orðin 1-0 fyrir heimamenn. Dalvíkingar gerðu hvað þeir gátu til að freista þess að jafna leikinn og skiptu þremur leikmönnum inn þegar leið á síðari hálfleikinn. KF var hinsvegar sterkara liðið og bættu við marki á 85. mínútu þegar Friðrik Örn (nr. 23) skoraði og kom KF í 2-0 þegar skammt var eftir. Var þetta hans annað mark í 13 leikjum í sumar fyrir félagið. Jóhann Örn (nr. 9) minnkaði muninn á 90. mínútu fyrir Dalvíkinga, og staðan 2-1 þegar aðeins uppbótartími var eftir. Á 93. mínútu þá fékk Aksentije Milisic rautt spjald hjá KF, en það kom ekki af sök, og urðu lokatölur 2-1 fyrir KF.
Önnur úrslit voru ekki hagstæð fyrir KF þar sem KFG sigraði KV 3-2 og kom sigurmarkið á allra síðustu mínútum leiksins. Það verða því Dalvík/Reynir og KFG sem spila í 2. deild á næsta ári og Ægir féll úr deildinni.
Þrátt fyrir þetta tap þá vinnur Dalvík/Reynir deildina í ár og spilar í 2. deildinni næsta sumar.
Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 2012 sem 32 stig duga til að sigra deildina.