dalvíkurbyggð

Þorskur frá Samherja í matvöruverslanir innanlands í haust

Samherji stefnir að því að efla enn frekar upplýsingamiðlun um starfsemi félagsins enda virðist full þörf á því sé tekið mið af nýlegri umræðu um íslenskan sjávarútveg í aðdraganda veiðigjaldafrumvarpsins. Sem lið í þessu birtir félagið nú kynningu með helstu upplýsingum um rekstur þess á síðasta ári og má nálgast hana hér fyrir neðan.

„Þá er ánægjulegt að geta sagt frá því að Samherji mun hefja sölu á þorskafurðum undir eigin vörumerki í matvöruverslunum hér innanlands með haustinu. Viðtökurnar á Landlaxi og Landbleikju hafa verið frábærar og við hlökkum til að geta boðið landsmönnum það besta úr landvinnslum okkar á Eyjafjarðarsvæðinu,“ segir Baldvin.