Þrifróbóti Samherja vekur athygli erlendis
Róbóti sem þrífur vélbúnað í vinnslu Samherja á Dalvík hefur verið tekinn í notkun, eftir um tveggja ára þróunarferli í samvinnu við kanadíska fyrirtækið Rbot9. Róbótinn fer í gang fljótlega eftir að vinnslu lýkur. Með þessari tækni breytast störfin að hluta til í eftirlit með því að búnaðurinn vinni vel og örugglega.
Rbot9 er verkfræðifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og samþættingu á kapaltengdum róbótum. Fyrirtækið hlaut nýsköpunarverðlaun á tæknisýningunni EATS Expo 2025, sem er sú stærsta sinnar tegundar í Norður-Ameríku og hefur þessi nýi hátæknibúnaður vakið mikla athygli.
Fyrirhugað er að vinna að enn frekari þróun búnaðarins í samvinnu við tækniteymi kanadíska fyrirtækisins. Við hönnun nýja vinnsluhússins á Dalvík var sérstaklega horft til þess að hafa góða lofthæð og nægt rými á milli vinnslulína, enda líklegt að í framtíðinni myndi verða framleiddur búnaður sem þyrfti umtalsvert rými.
Matvælafyrirtæki víða um heim hafa þegar óskað eftir því að fá að skoða búnaðinn á Dalvík.
Nánar má lesa á vef Samherja.

