dalvíkurbyggð

Tónlistarbingó í Bergi 30. desember

Meistaraflokkar Dalvíkur/Reynis í knattspyrnu halda Tónlistarbingó í Bergi menningarhúsi þriðjudaginn 30. desember. Aðgöngumiðinn kostar 3000 kr. og er hægt að kaupa auka spjald á 1000 kr. Viðburðurinn hefst kl. 20:30.
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir verður bingóstjóri.  Eftir bingó mun Þröstur Ingvarsson trúbador halda uppi stuðinu á hólnum.