Fjallabyggð

Tónlistarhátíðin Berjadagar hefst á föstudaginn í Ólafsfirði

Berjadagar tónlistarhátíð í Ólafsfirði hefst föstudaginn 15. ágúst kl. 11:00 og stendur til laugardagskvöldsins 16. ágúst kl. 21:00.  Tónleikar og dagskrá fer fram í menningarhúsinu Brimsölum og í Ólafsfjarðarkirkju.

Berjadagar 2025 eru í samvinnu við umhverfisverkefnið Fegurð Fjarða og Brimsali í Ólafsfirði.

Dagskráin hefst með Bach tónleikum í Ólafsfjarðarkirkju á föstudaginn og tónleikar verða um kvöldið í Brimsölum þar sem flyginn Jóns Þórsteinssonar heitins verður vígður í nýju rými. Þar verður fjöldasöngur. Á laugardag er hægt að fara í göngu frá Héðinsfirði í Rauðuskörð og niður í Kleifar í Ólafsfirði. Nonnakvöld verður á laugardagskvöldið í Ólafsfjarðarkirkju.

Hægt er að kaupa miða á tix.is eða við hurð.

Dagskrá:

BERJADAGAR – Föstudagur 15. ágúst

Kl. 11:00-11:30 Ólafsfjarðarkirkja við Kirkjuveg – TÓNLEIKAR
‘Bach í bítið’
Ólöf Sigursveinsdóttir barokkselló
Eftir tónleikana: Norðlensk ostakaka og kaffibolli númer tvö í safnaðarheimiliinu

Kl. 19:00 í sal Brimsala við Námuveg 8 – TÓNLEIKAR
‘Hafgúa, marfólk og dísir’ – Flygill Jóns Þorsteinssonar (1951-2024) vígður í nýju rými.
Fjöldasöngur og gleði við völd! Byrjað í fyrra fallinu því Ída Semey býður uppá súpu fyrir gesti. Tónlist eftir Gaspar Cassado, Arvo Pärt, Edvard Grieg, Árni Thorsteins o.fl
Fram koma: Sellósveitin Sólstafir, Sigursveinn Magnússon píanó og Sigrún Valgerður Gestsdóttir sópransöngkona, Ásdís Arnardóttir selló, Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir selló, Hrafn Heiðar Guðmundsson selló, Ólöf Sigursveinsdóttir selló

BERJADAGAR – Laugardagur 16. ágúst
Kl. 10:00 – Héðinsfjörður – Rauðskörð – Kleifar Ólafsfirði – GANGA

Gangan er fimm klukkutímar. Leiðsögn: María Bjarney Leifsdóttir S. 6632969

Kl. 20:00 Ólafsfjarðarkirkja við Kirkjuveg – TÓNLEIKAR

‘Nonnakvöld’

Elmar er nemandi Jóns Þorsteinssonar (1951-2024) og hefur verið söngvari við ríkisóperuna í Stuttgart síðustu árin. Þangað kom hann, sá og sigrað og því eru allir hvattir til að leggja leið sína í kirkjuna til að hlýða á söng og leik þeirra félaga. Á þessum tónleikum hljómar einnig sellókonsert eftir Edvard Elgar. Fram koma: Elmar Gilbertsson tenór, Einar Bjartur Egilsson píanó, Ólöf Sigursveinsdóttir selló

Styrktaraðilar Fjallabyggð, Ísfélagið, Eignamiðlun ehf.

Aðgangseyrir 3500 kr. Hátíðarpassi 6000 kr. Miðar við innganginn og á tix.is