dalvíkurbyggð

Verkefni ársins 2025 kynnt fyrir verktökum og íbúum á Dalvík

Miðvikudaginn 22. janúar kl. 17:00 verður opinn fundur með verktökum í menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Allir íbúar Dalvíkurbyggðar eru velkomnir en verktakar sérstaklega velkomnir.

Á fundinum verður farið yfir helstu verkefni ársins 2025 í Dalvíkurbyggð. Farið yfir nýframkvæmdir  og viðhaldsframkvæmdir.
Einnig verður farið yfir verkáætlanir, verktíma og fyrirkomulag útboða og verðkannana.

Hægt verður að nálgast glærur frá fundinum eftir fundinn.