Vetrarstarf hefst hjá Framsóknarfélagi Dalvíkur
Vetrarstarfið hefst hjá Framsóknarfélagi Dalvíkur föstudaginn 3. október kl. 20:30 á Hólnum í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður, kemur á fundinn og eru allir félagar hvattir til að mæta í spjallið.
