Vilja gera meira úr sundlaugarskemmtun á 17. júní
Ungmennaráð Dalvíkurbyggðar fundaði í vikunni og fór yfir dagskrá fyrir 17. júní hátíðarhöldin. Ungmennaráðið telur dagskrána vera góða eins og hún hefur verið uppsett undanfarin ár.
Ungmennaráðið hefur lagt til að meira verði gert úr sundlaugarskemmtun síðdegis á 17. júní, t.d. að keppt verði í koddaslag á slá yfir sundlauginni. Einnig leggur ráðið til að skipt verði eftir aldri í sundskemmtunina. Fyrst verði allir velkomnir í sund og um kvöldið verði eingöngu fyrir 13-18 ára.