dalvíkurbyggð

Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar hefst 10. júní

Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar hefst þriðjudaginn 10. júní og mun starfa í sex vikur, eða til og með 18. júlí.
Áætlaður starfstími er eftirfarandi:

Árgangur 2009: 6 vikur. 8:30 – 15:30 – 7 klst. á dag.
Árgangur 2010: 6 vikur. 8:30 – 15:30 – 7 klst. á dag.
Árgangur 2011: 6 vikur. 8:30 – 14:00 – 5,5 klst. á dag.

 

Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar er fyrst og fremst skóli þar sem nemendur/starfsmenn fá að stíga sín fyrstu skref í starfi undir leiðsögn og með stuðningi flokksstjóra og eldri starfsmanna Vinnuskólans. Markmið Vinnuskólans er að undirbúa unglingana í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Lögð er áhersla á að nemendur virði samskiptareglur, sýni ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart starfi og umhverfi.

Kynningarfundur fyrir áhugasama nemendur og foreldra þeirra verður haldinn í Dalvíkurskóla miðvikudaginn 14. maí kl 16:00.