X í C fyrir framtíð á Íslandi – aðsend grein
Ísland er ótrúlegt land. Ég valdi það ekki að fæðast hér en hingað kom ég samt. Foreldrar mínir eignuðust mig tíu árum eftir myntbreytinguna, þar sem þurfti að fella af tvö núll af íslensku krónunni í tilraun íslenska ríkisins til þess að forða óðaverðbólgu. Ástandið var þannig að það kostaði meira að framleiða krónu pening en virði krónu peningsins var í hagkerfinu. Vá, stór orð. Myntbreyting – óðaverðbólga – hagkerfi. Röddin í höfðinu á þér sem les upphátt þegar þú ert að lesa í hljóði er byrjuð að dofna, athyglin er að fara eitthvað annað. Skrollum nú Tik Tok, Instagram… Varstu að fá Snapchat? BÍDDU AÐEINS. Ég ætla að mála öðruvísi mynd.
Þó svo ég hafi ekki valið það að fæðast hér þá hef ég samt val um það að fara héðan. Meira að segja að fara héðan og koma aldrei aftur. Þú hefur líka það val. En, við sem erum ung og búum hér hljótum að eðlisfari að vera forvitið fólk, þrjósk og búið mikilli seiglu. Það er nefnilega það sem þarf til þess að búa hér. Ég hvet þig til þess að nýta þennan kraft okkar til þess að breyta því sem breyta þarf. Íslenska ríkið er ekki blaðra sem er hægt að blása í endalaust, það þarf að taka loftið úr blöðrunni áður en hún springur enn einu sinni. Fækkum stofnunum því ríkið á ekki að selja áfengi, senda póst eða sjá um happdrætti. Sameinum stofnanir þar sem hægt er, nýtum þekkingagrunninn sem við höfum og hættum að sóa kröftum mannauðsins með því að láta fólk dúsa hornana á milli eins og ormar á gulli með sérþekkingu. Deilum upplýsingum og opnum á gagnagrunna. Aukum gegnsæi.
Ertu ennþá hér? Okei okei. Smá í viðbót. Við búum í ótrúlegu landi. Við höfum enga stjórn á því hvenær næst eldgos verða eða jarðskjálftar. En við höfum stjórn á ansi mörgu. Við höfum stjórn á framtíðinni. Gefum bændum val á því hvert þeir selja sína afurð, veitum þeim meira frelsi. Jöfnum tækifæri framhaldsskólanemenda sem búa í dreifðum byggðum. Horfum til þess að jafna tækifæri eftir búsetu þeirra ungra einstaklinga sem vilja stunda strandveiðar. Setjum fram langtíma áætlanir varðandi stuðning til nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi þannig einstaklingar horfi til þess að það sé spennandi framtíð í hugmyndaauðgi þeirra. Förum í innspýtingu í tækniþróun í heilbrigðiskerfinu svo það sé hægt að þjónusta okkur betur í heimabyggð. Setjum meira frelsi inn í fæðingarorlofskerfið og horfum til þess að leyfa fólki að halda tekjum sínum í fæðingarorlofi. Við skulum halda áfram að velja að búa hér. Horfum til framtíðar.
Nú máttu skrolla.
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir
- sæti á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar.
Texti og mynd: Aðsend grein.