AkureyriNorðurland

PCR og hraðgreiningarpróf hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands

PCR próf eru í boði hjá HSN á Akureyri, Húsavík og Sauðárkróki, hraðgreiningarpróf verða í boði hjá starfsstöðvum HSN á Blönduósi, Siglufirði og Þórshöfn. Nánari upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma má sjá í töflu hér fyrir neðan.

Fyrirkomulag PCR prófa og hraðprófa hjá HSN:

  1. Einkennasýnataka PCR próf eru á Akureyri, Húsavík og Sauðárkróki.
  2. Hraðgreiningarpróf eru á Blönduósi, Siglufirði og Þórshöfn
  3. Tímapantanir fyrir PCR próf og hraðgreiningarpróf fara fram í gegnum heilsuvera.is/
  4. Ferðamanna PCR próf eru í boði fyrir einkennalausa sem þurfa neikvæðar niðurstöður vegna ferðalaga erlendis á Akureyri og Reykjavík og eru pöntuð í gegnum travel.covid.is. Prófið kostar 7000 kr. Einnig er hægt að bóka próf á Húsavík í gegnum heilsuvera.is/
  5. Ferðamanna hraðgreiningapróf, fyrir fólk sem er að fara erlendis eða koma að utan eru á öllum meginstarfstöðvum og eru pöntuð í gegnum heilsuvera.is/
  6. Einkennasýnataka hjá heilsugæslu og heilbrigðisstofnunum verður áfram gjaldfrjáls skv. tilmælum sóttvarnarlæknis, sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
  7. Sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan