dalvíkurbyggð

Dalvíkurbyggð selur eignina Árskóg

Dalvíkurbyggð hefur auglýst til sölu eignina Árskóg, 621 Dalvík, sem staðsett er á Árskógsströnd við hlið Árskógarskóla.

Um er að ræða 185,8 fm einbýlishús með 5 herbergjum og tvöföldum bílskúr ásamt 1.122 fm leigulóð. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Ásett verð er 33 milljónir króna.

Eignin skiptist í forstofu, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu, eldhús, stofu og þvottahús.

Nánari upplýsingar veitir fasteignasalan Hvammur http://fasteignir.visir.is/property/181471/show